Monday, June 19, 2017

Grilluð Kjúklingabringa al a Jakob

Undanfarin mánuð er ég búinn að vera á einhverju matarprógrammi. Sem væri ekki frásögufærandi nema að á þessu prógrammi þá á ég að éta fáránlega mikið af prótínum og þá sérstaklega úr fisk eða kjöti með lítilli fitu. Það þýðir að ég hef meira og minna étið fisk eða kjúklingabringur núna í 19 daga. Ég er því búinn að prófa allan fjandann er varðar marineringar og eldanir.

Nema hvað að ein bull marineringin sem ég setti í skál bar höfuð og herðar yfir allar hinar uppskriftinar. Án djóks ég sagði alveg upphátt "nammi" þegar ég fékk mér fyrsta bitann. Nokkrum dögum síðar endurtek ég leikinn og aftur var þetta einn besti kjúklingur sem ég hef smakkað.

Holl og fáránlega góð!


Grilluð Kjúklingabringa a la Jakob

4 bringur
2 mtsk góð ólífuolía
3-5 hvítlauksgeirar
1 þumall ferskt engifer
tsk worchester sósa
Sítrónusafi úr 1/4 sítrónu
1/2 sítróna eða allavega semi slatti af sítrónu-zesti (húðin af sítrónunni)
Handfylli hnetur (ég var með hunangsristaðar chilli hnetur)
Smá fersk kryddjurt, ég notaði steinselju (má sleppa)
tsk dijon-sinnep (má sleppa)
Sjávarsalt og pipar

1. Setjið olíuna í skál og kreistið hvítlauksgeirana og engiferið með pressu ofan í.
2. Því næst setjið þið worchester sósuna, sinnepið, sítrónusafann og hærið öllu saman.
3. Bætið kjúklingabringunum saman við og saltið og piprið. Veltið þeim vel upp úr því sem er komið í skálina.
4. Takið svo hneturnar, myljið þær og setjið í skál. Skerið svo einnig ferskukryddjurtina smátt og bætið saman við muldu kryddjurtinar. Stráið svo þessu svo nokkuð jafnt yfir kjúklingabringurnar.
5.Að lokum er svo sítrónusestið rifið ofan á bringurnar með rifjárni. Saltað og piprað aftur.
6. Hrærið vel í. Látið svo standa í 30 mín eða lengur.

Grillað
7. Best er að taka bringurnar (á stofuhita) og setja þær beint á heitasta staðinn á grillinnu. Reynið að snerta eins lítið við þeim og þið getið þegar þær eru komnar á grillið því annars missa þær vökva.
8. Eftir um það bil 5 min eru þeim snúið við.
9. Að lokum eru þær svo settar á minni hita og leyft að eldast í gegn.

Gott er að bera fram með sætri kartöflu, slatta af salti og hvítlauksbættri Raita (jógúrt-gúrku sósunni inverskunni) eða bara dijon sinnepi.

Fáránlega hollt, og lygilega gott!

Ps. þetta er ekki ein flókið og það virðist vera hér. 
pps. held að þessi uppskrift myndi líka passa vel í heimatilbúið kebab 

No comments:

Post a Comment